Velkomin á Húsavík
Ertu að leita að gistingu á Húsavík? langar þig að vera í notalegu gistihúsi sem bíður upp á alla þá aðstöðu sem þú þarfnast? þá ertu á réttum stað!
Gistihúsið okkar hefur allt sem þarf til að þú njótir dvalarinnar sem best, er á frábærum stað, í göngufæru frá öllum helstu stöðum, hvort sem það er sundlaug, matvörubúð, matsölustaður, miðbær, söfn eða annað.
Við bjóðum uppá 5 herbergi, 2 tveggja manna, 2 þriggja manna og 1 fjögurra manna, öll herbergin eru með uppábúin rúm, við erum með sameiginlegt fullbúið eldhús, 2 sameiginleg fullbúin baðherbergi, sitthvort með þvottavél og þurrkara, fría nettengingu og gott stæði til að leggja bílnum. Ef gestir okkar hafa einhverjar sér óskir þá gerum við okkar besta til að verða við þeim!
Örlítið um Húsavík
Húsavík hefur uppá margt að bjóða,fallegt bæjarstæði, vinsælasti hvaðaskoðunarstaður í heimi, frábær söfn, góða veitingastaði, eina fallegustu kirkju landsins, skemmtilegt mannlíf ásamt fleiru, svo það er margt að skoða og upplifa á þessum frábæra stað.
á síðuni hjá okkur er tenglasíða þar sem hægt er að finna upplýsingar um alla helstu staði sem Húsavík býður uppá, smellið því endilega á hlekkinn "Húsavík" á tenglastikuni, skoðið síðuna og njótið alls þess sem í boði er.